Verndaður vinnustaður?

Hvernig getur óhæf manneskja í einu ráðuneyti verið hæf í öðru?

Er kannski skortur á hæfum Íslendingum í landinu?
Hversvegna þurfum við landsmenna að horfa upp á það aftur og aftur að púkkað er upp á vanhæft fólk.

Fyrst fjármálaráðherra, nú matvælaráðherra.

Á hinum almenna vinnumarkaði er vanhæft fólk látið fara.
Hvernig er Alþingi öðruvísi?

Nema náttúrulega að Alþingi Íslendinga sé "verndaður" vinnustaður!

... ég bara spyr.


mbl.is Stjórnin í hættu nema Svandís skipti um stól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttsýnn og heiðarlegur!!

Ja nú er ég ánægður,
Hérna er kominn fram raunverulegur valkostur, sem auðvelt verður að fylkja sér bakvið!

Og ekki er það verra að frú Hrafnhildur er ófeimin að bera trúartákn Kristinna.

Þessi hjón þora að standa fyrir sínu, við þurfum slíkt fólk núna!

Arnar Þór Jónsson og Hrafnhildi Sigurðardóttur á Bessastaði!


mbl.is Segir sig úr flokknum og frá varaþingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðan hvenær eru frumvörp ekki samin af ...

Síðan hvenær eru frumvörp ekki samin af hagsmunaaðilum,þeim sem gæta sinna hagsmuna.

Og yfirleitt eru það stórfyrirtæki sem hafa sína hagsmuni í heiðri ... framyfir hagsmuni neytenda, og því verða lög sífellt óréttlátari eftir því sem tímar líða.

Lagasetningar byggðar upp á þennan máta munu alltaf færa vald/frelsi frá fólkinu til stjórnvalda og/eða stórfyrirtækja.

Hvenær ætli fólkið í landinu fái slík völd sem stjórnendur stórra hagsmunaaðila. Málið er að einn og einn hefur lítið að segja í þetta ofurvald, stutt af Alþingi, en í fjöldanum er vald og kraftur.


mbl.is Frumvarpið ekki samið á skrifstofu Landsvirkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með ógild vegabréf í höndum.

Það sagði mér Venesúela skjól-leitandi í gærhvelið að vegabréf hefðu verið afhent á ný en að þau væru nú ógild.

Þessar fréttir henta dómsmálaráðherra og ríkisstjórn (alþingi) vel því þá er hægt að halda áfram með brottflutning raunverulegs fólks til Venesúela.

Fólk flýr ekki heimalandið bara af því bara, þau fara vegna þess að þeim er ólíft.
Sambærilegt er ástandið í Grindavík, fólk flýr vegna þess að annaðhvort er hættulegt að vera áfram, eða það er ólíft að vera áfram og fólk fer til að reyna að bjarga lífi sínu og fjölskyldu sinnar.

Ég þekki fjölda þessara Venesúela búa sem hingað eru komin, þau eru öll bara venjulegt fólk, þau sem ég þekki eru hreint yndislegt fólk, margt hvert hámenntað. Það sem þau þrá að lifa í öryggi og leggja Íslandi krafta sína. Þau eru ekki hingað komin til að leggjast upp á sósíalinn, vilja vinna en mega það ekki.
Fólið sem ég þekki væru landi og þjóð mikill fengur ef þau fengju að vera.

Hámenntað fólk rífur ekki upp rætur og flýr til annarra landa bara af því,
það er ástæða en Alþingi og ríkisstjórn spáir ekki í það ... gleypa við fréttum sem henta!

 

Einhvernvegin kemur svartur blettur á sögu Bandaríkjanna mér í hug þegar ég horfi á atgang íslenskra stjórnvalda gagnvart flóttafólki.
https://www.history.com/news/wwii-jewish-refugee-ship-st-louis-1939


mbl.is Frjálsir ferða sinna og búnir að fá vegabréfin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðan hvenær?

"Gera má ráð fyr­ir því að hlut­fall bólu­settra starfs­manna sé orðið enn hærra í dag þar sem þeim sem hafa áður smit­ast af kór­ónu­veirunni hef­ur nú verið boðin bólu­setn­ing."

Síðan hvenær varð manngert bóluefni betra en náttúrulegt ónæmi?

Væri gaman að sjá fræðin á bak við þessa nálgun, ekki myndu niðurstöður rannsókna skemma fyrir.


mbl.is Sárafáir hafnað bólusetningum alfarið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bla bla bla

Og leikritið heldur áfram!

Eru komin uppfærð skilaboð frá leikstjórn (WHO) um að PCR mögnunin fari aftur í x40, sem er að mati margra sérfræðinga algerlega sturlað

... en það truflar ekki leikstjórana, ekki frekar nú en áður.


mbl.is Smitin dreift sér og stefnir í veldisvöxt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er viljinn til að finna lausnir, bara í nösum ráðamanna?

Er ekki drepsótt í gangi í heiminum, það er allavega það sem borgurum þjóða er tjáð um leið og dyrum  heimilanna er skellt í lás (lockdowns)

Það er eins og að lækningin megi eingöngu koma eftir ákveðnum leiðum, ef það er raunin þá verður að spyrja, hversvegna?

Er drepsótt dauðans alvara, eða hagsmunapot stjórnvalda og stórfyrirtækja??


mbl.is Bólusetti fjölskylduna með eigin bóluefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bóluefnin koma öll á sama tíma, hvernig gat það gerst!?

Nú skilst manni að nálgun bóluefna framleiðendanna sé mjög mismunandi en samt eru bóluefnin að koma fram á sama tíma.

Var þetta samvinnuverkefni allra framleiðenda, og hvað þá með þessa ólíku nálgun?


mbl.is Ríkari löndin hamstra bóluefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlamenn þreytast seint að ljúga.

Rosalega eiga nú fjölmiðlamenn það bágt að þurfa að lúta yfirboðurum og búa stöðugt til drullufréttir um "óæskilegt fólkið" að mati elítunnar. Í þessu pínulitla samfélagi á þessu fallega landi er ekki lengur rúm fyrir svona hegðun.
En svona er nú Ísland í dag, og hefur í raun verið allt of lengi!!

En aftur að þessari athygliverðu frétt mbl.is
Elísabet Guðmundsdóttir læknir, hefur með einföldu viðtali og smá ráðgjöf hjálpað vinkonu minni meira en nokkur annar læknir á þessu landi varðandi núverandi heilsuáskorun hennar.

Þannig er að vinkona mín fann hnút í brjósti fyrir nokkrum árum, fór í krabbameinsskoðun og var hið snarasta skellt upp á færiband krabbameinslækninga.
Þar sem þessi manneskja fæddist með bein í nefinu þá hoppaði hún pent ofan af færibandinu og yfirgaf Skógarhlíðina, vildi ræða við manninn sinn, skoða málið frá öðrum hliðum áður en hún færi lengra inn í þann farveg, sem jú hafði fært systur hennar úr þessum heimi og í þann næsta, einungis fimmtuga.
Sú meðferð sem systir hennar varð að lúta í lægra haldi fyrir minnti á stundum meira á sláturhús en vestræna lækningu, vonandi eru vinnubrögð önnur í dag.

Þar sem vinkonan var að yfirgefa Skógarhlíðina, ekki á hraðferð upp á Landspítala í aðgerð heldur heim til sín til að hugleiða stöðuna, þá var henni tjáð að ef hún fylgdi ekki áætlun læknisins þá yrði erfitt fyrir hana að komast aftur inn í röðina ef henni snérist hugur.
Falleg skilaboð, eða hitt þó heldur ... enn einn hræðsluáróðurinn.

Það má sjá um allan heim að læknar sem fara út af spori hinna samþykktu vestrænu lækninga verða fyrir aðkasti kollega sinna og svo fjölmiðla, og megi himnarnir forða viðkomandi lækni frá því að raunverulega lækna einhvern. Þá fylgja verri ofsóknir, hótanir á læknaleyfis missi osfrv.
Ég er rosalega þakklátur fyrir það að Elísabet man enn hversvegna hún fór í læknisfræðina, að hún hefur haft í hávegum þann eið sem hún vann við útskrift sína, að: Fyrst skaða ekki.
Að hún gaf sér tíma til að útskýra fyrir vinkonu minni, með einföldum skiljanlegum orðum starfsemi líkamans og út frá því hvað gæti verið að valda þessum hnút. Þessi fræðsla er að skila frábærum árangri.

Bara að fleiri læknar væru eins og Elísabet Guðmundsdóttir læknir.

Einnig þakka ég Elísabetu fyrir að hafa bein í nefinu og þora að standa upp og mótmæla því ofbeldi sem stundað er á Íslendingum nú. Að setja grímu á börn allt niður í 6 ára, er ekkert annað en ofbeldi, að einangra eldri Íslendinga í svo langan tíma sem raun ber vitni, og á þann hátt sem hér er gert er ofbeldi af hendi sóttvarnarlæknis, landlæknis og lögreglunnar.

Hvenær ætla heilbrigðisyfirvöld og fjölmiðlar að hætta að hræða fólk upp úr skónum, og þess í staða að hefja kennslu á því hvernig ónæmiskerfið virkar, hvernig efla má ónæmiskerfið með einföldum ráðum og þannig að gera það hæfara til að klára þessa "flensu" á einfaldan og markvissan máta.
Nú eru liðnir 9 mánuðir frá því að þetta götu-leikhús var opnað og ekki hefur enn verið talað um eflingu ónæmiskerfisins. Hverskonar "Doctorar" (kennarar) eru hér við stjórn?

Og ef læknisfræði háskólanna kennir ekki þessi fræði, leiðum þá inn á sjónarsviðið fólk sem hefur þessa þekkingu.
Ónæmiskerfi okkar þarf áskoranir til að standa af sér óværur sem þá sem nú geisar. Það þarf ekki hvíld heima fyrir án áreitis. Slíkt ónæmiskerfi hefur ekki getuna til að gera mikið þegar viðkomandi loks þorir aftur út fyrir hússins dyr.

Það er fátt sorglegra en að horfa upp á fólk eitt á gangi eða eitt í bíl, með grímu fyrir vitum. Og hvað er svona sorglegt við það?
jú, sorgin felst í fáfræðinni og óttanum sem þarna Skín í gegn.
Gríman verndar engan fyrir vírusum! Þetta sagði Þórólfur sjálfur í upphafi þessa "Faraldurs"
Vírusar eru 1/1000 af stærð loftrásanna í grímunum, þeir fara um grímuna eins og fluga í gegn um möskva fótboltanets ... engin hindrun.
Hvers vegna er þetta ekki kennt og fólki gefin aftur þau sjálfsögðu mannréttindi að njóta úti loftsins.

Nú er komið nóg.
Reynið að manna ykkur upp, og fara að lækna þessa pest, og hætta þessum hræðslu áróðri í hverju einasta orði sem þið talið.


mbl.is Elísabet ekki með lækningaleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Einarsson

Áhugamaður um almennt heilsufrelsi. Valfrelsið er okkar stærsta gjöf, notum það!

Höfundur

Ólafur Einarsson
Ólafur Einarsson
Áhugamaður um heilsufrelsi Íslendinga. Við eigum að hafa réttinn til að velja okkar meðferðarleið til heilbrigðis sjálf, og fá til þess fjárhagslegan stuðning þrátt fyrir að leiðin sé utan þess "hefðbundna".

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband