13.10.2016 | 09:01
Spilar hann handbolta, er hann liðtækur í taflmennsku, er hann ...
Spilar hann handbolta? ... s.b. Duranova
Er hann liðtækur í taflmennsku? ... s.b. Fischer
Er hann á einhvern hátt tengdur Framsókn? ... ekki meira um það,
Ef ekki þá eru möguleikar litlir því einungis slíkir fá flýtimeðferð til hins íslenska ríkisborgararéttar.
Flestir aðrir eru sendir úr landi!
Sorry!
Flytja á Goran úr landi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2016 | 20:25
Ragnheiður Elín, hversvegna 90 daga reglan á Jón og Gunnu ?
Þetta er athygliverð úttekt hjá Aríon banka. Miðað við aðstæður virðist staðan vera alvarleg svo vægt sé til orða tekið, jafnvel svo fljótt sem á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
Samkvæmt umfjölluninni þá kemur eftirfarandi fram:
...segir Erna í samtali við mbl.is, en hún bendir á að miðað við spá greiningardeildarinnar um fjölgun ferðamanna á komandi árum megi gera ráð fyrir því að allt hótelrými á höfuðborgarsvæðinu væri fullnýtt strax á fyrsta ársfjórðungi næsta árs ef ekki væri áfram bætt við gistirýmum.
og þá spyr ég Frú Ragnheiði Elínu Árnadóttur, Iðnaðar og viðskiptaráðherra, hvaðan kom hugmyndin um 90 daga þakið á Airbnb, en Airbnb virðist vera mjög raunhæfur "buffer" á þetta ástand hörguls gistirýma og offramboðs ferðamanna?
Persónulega held ég að svarið um 90 daga þakið komi einmitt í næstu setningu í þessari sömu samantekt mbl.is
Hún (Erna ... innskot bloggara) tekur þó fram að sem betur fer sé talsvert um að unnið sé að nýjum hótelum.
Og í þessum orðum held ég að hundurinn liggi einmitt grafinn Ragnheiður Elín, þarna er etv. komið svarið við því hversvegna Jón og Gunna mega ekki skapa sér smá tekjur árið um kring, mega ekki vinna að því að láta enda ná saman, heldur eru settar 90 daga skorður án góðra skýringa!!
Liggur skýringin í þessum orðum Erlu, Ragnheiður?
Því þá lýtur það út eins og að þessir "stóru og feitu" (nýju og gömlu fjárfestarnir í gistirýmum) vilja verða "enn stærri og enn feitari" ... á venjulegu máli kallast þetta græðgi og hefur aldrei verið talið til mannkosta, nema hjá frekar þröngum hópi fólks og hjá einhverjum stjórnmálamönnum sem ekki virðast sjá stóru myndina á bakvið frumvörpin og breytingartillögurnar utan úr bæ. Eða, sjá þeir kanski stóru myndina?
Því spyr ég Ragnheiður Elín: Er komið svarið við því hvaðan hugmyndin um 90 daga þakið á heimagistingu er komið?
Var Deilihagkerfið "bjargvætturinn" kæft í fæðingu Ragnheiður?
Vondum lögum má breyta og vondir stjórnmálamenn detta út af þingi ... þó er það því miður ekki algild regla, en gerist þó, það hefur sagan kennt okkur.
Gæti stefnt í hótelskort á næsta ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.9.2016 kl. 07:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.9.2016 | 22:53
RÚV sumra landsmanna ...
Þessi svokallaði fjölmiðill allra landsmanna, með sínar "þverbrotnu" lagalegu skyldur, leyfir sér að ganga á undan í lögbrotum og einelti á fólk og flokka ... er ekki komið nóg?
Fer ekki fólk að þurfa að taka pokann sinn á þessum bæ?
Fyrir mitt leiti og sem hluthafi/meðeigandi í RÚV er alveg tilbúinn að styðja brottrekstur nokkurra vanhæfra starfsmanna þessa fyrrum ágæta fjölmiðils.
Segir ummælin sýna andúð á Framsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2016 | 19:05
Reykjavík full af tómum hótelum ...
Er þá að koma fram það sem haft var eftir Klaus Ortlieb hótel-mógul á mbl.is þann 9.júlí sl.?
Reykjavík full af tómum hótelum...
Eitt gott eldgos gæti þannig verið nóg til að allar nýju fínu dýru hótelbyggingarnar standi auðar og vegi þungt í næsta hruni.
Datt þetta bara í hug.
Ferðaviðvaranir í til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.8.2016 | 23:34
Áróðurinn heldur áfram ...
Eru þessi orð raunverulega orð Hermanns?
"Hermann telur að innreið Airbnb á Íslandi hafi neikvæð samfélagsleg áhrif því hún stuðli að snarhækkun leigu- og fasteignaverðs."
... Og ef þetta eru orð Hermanns, þá spyr ég Hermann:
1. Hvað með allar íbúðirnar sem Íbúðalánasjóður á og lætur standa auðar?
2. Hvað með allar íbúðirnar sem allir stóru bankarnir eiga og láta standa auðar?
3. Hvað með eignirnar sem erlendir stóreignamenn eiga hér og standa jafnvel auðar?
Þessar íbúðir telja gott betur en þann fjölda sem hér er gert í skóna að Airbnb haldi frá unga fólkinu ... þessar íbúðir eru aldrei nefndar í þessari umræðu, hvers vegna?
... mögulega vegna þess að hagsmunatengsl eru milli fjölmiðlanna og þessara peningastofnanna eða eigenda þeirra?
... mögulega vegna þess að hóteleigendur/hótel-byggjendur vilja ekki að fólk muni eftir öllum þessum auðu íbúðum þegar áróðursmaskínan er látin ganga, það passar ekki inn í myndina?
Þessar stofnanir, þessir auðmenn eru að gæta sinna hagsmuna, sem sagt að halda verðlagi háu ...er það á kostnað ungafólksins?
Þegar svo Jón og Gunna mega ekki leigja frá sér (LÖGLEGA) auka herbergin sín, sem fyrrum hýsti börnin þeirra, án þess að flestir fjölmiðlar taki þátt í blindri áróðursherferð á hendur þessu formi gistingar og etji saman kynslóðum með þessum herferðum sínum, þá er eitthvað bogið við myndina, þá kemur upp fnykur skipulagðs áróðurs.
Hverjir eiga annars mest undir því að deilihagkerfið (Airbnb, Trip Advisor og fleiri) í gistingu sé sem minnst, og helst ekki til ... ég bara spyr?
Nei mér sýnist sem enn einn útpældur áróðurinn sé hér í gangi gegn deilihagkerfinu, etv. hjá Hermanni, en ekki endilega ... og ef ekki, þá hjá vel þjálfuðum blaðamanni MBL.IS og þeim sem hann egndu.
Airbnb keyrir stíft inn á Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.8.2016 | 18:12
Þetta unga fólk skilur ekki ...
Æ þetta unga fólk, það skilur ekki, að einhver verður náttúrulega að borga fyrir há laun og ofurbónusa okkar yndislega samfélags, þau bara ná þessu ekki og flýja því land.
Getur hann Bjarni ekki útskýrt þetta fyrir fólkinu, líkt og hann gerði þegar matarskatturinn var hækkaður úr 7 í 11%
... 209,- Ikr. í máltíð, var það nokkuð mál ... ef rétt útskýrt.
NEI, Þetta samfélag er til háborinnar skammar
HVERNIG farið er með börnin okkar er til háborinnar skammar,
HVERNIG farið er með unga fólkið er til háborinnar skammar,
Hvernig farið er með gamla fólkið er til háborinnar skammar,
Hvernig farið er með ALLA nema ELÍTUNA er til háborinnar skammar!
. . . og fyrir fjármálastofnanir að ÞORA síðan að koma fram með tilkynningar um met afkomu, talið í milljörðum ...
... HVER BORGAÐI FYRIR MILJARÐA HAGNAÐINN ????????????
Bless Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hérna fær fólk ekki landvistarleyfi,því síður ríkisborgararétt, nema það geti eitthvað ...
"Íslendingurinn" Robert Julián Duranona (þessi sem hvarf af landi brott stuttu eftir að hafa öðlast Íslenskan ríkisborgararétt) gat spilað handbolta ... hum.
Bobby Fischer þótti duglegur í taflmennskunni.
Tilvonandi tengdadóttir Jónínu Bjartmarz fékk ríkisborgararétt eftir 15 mánaða dvöl á Íslandi, ég vona að sambandið hafi haldið !!!
Ekki kom fram hvort það var handboltinn eða taflmennskan sem hjálpaði henni.
Sem sagt:
Góður í handbolta - íslenskur ríkisborgararéttur!
Góður í taflmennsku - íslenskur ríkisborgararéttur!
Þekkir Jónínu Bjartmarz - íslenskur ríkisborgararéttur!
En mæðgur sem eiga það á hættu að vera drepnar þegar þeim verður snúið til baka (eiginmaður og sonur þegar horfnir), ég bara spyr: bera þær af í einhverju, geta þær eitthvað og fá því flýtimeðferð, því ef ekki, þá eru þær og aðrir í sömu sporum sendar út á kaldann klakann á okkar "ágæta" landi.
Hvar er Jónína Bjartmarz þegar fólk þarf á henni að halda, ég bara spyr?
Brjálæði" að senda þær aftur til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2016 | 17:26
... en hvaðan er hagnaðurinn fenginn?
Alltaf gaman að sjá að vel gengur í fyrirtækjum landsins... en hvaðan skyldi þessi hagnaður vera fenginn?
Það væri svo gaman ef bankastofnanir væru reknar sem samfélagsþjónusta ... á núll hagnaði.
Það þýddi að vísu að 11.300.000.000,- væru enn hjá fólkinu. Ef við segjum að í landinu búi 330.000 manns og það væri einhverskonar jafnaðardreifing á það hvað Landsbankinn hagnaðist á hverjum Íslendingi (viðskiptavini) þá þýddi það tilfærslu frá sérhverjum þeirra til Landsbankanns upp á 34.242,- Ikr.
Nú skipta ekki allir við Landsbankann þannig að eitthvað eru viðskiptavinir hans að borga meira fyrir þjónustuna!
Þrír stórir bankar og því 1/3 eða 110.000 Íslendingar og því 3 x 34.242,- = 102.727
Svo sé ég að þetta er bara hálfsárs uppgjör svo 102.727,- x 2
Bara hugrenningar.
11,3 milljarða hagnaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að frumkvæði hóteleigenda og annarra stóreignamanna ætla nú allir að leggja pening í hótelin og ferðamennina og græða á tá og fingri.
Fyrir þá sem lengra sjá en nef þeirra nær er það deginum ljósara að Hótelbrjálæðið er hið nýja Lax-eldi, loðdýra-rækt eða hvað þetta háttalag hefur heitið á fyrri árum.
Hér á landi og víðar um heim hefur heimagistingarformið eða deilihagkerfið (Airbnb og Trip Advisor heitir það í dag), ef löglega gert, þjónað þeim tilgangi að vera stuðpúði á slíkar bólur sem ferðamannaiðnaðurinn nú er ... en ekki á Íslandi, ekki lengur, því nú í vor samþykkti hið háa Alþingi frumvarp Iðnaðar og viðskiptaráðherra Ragnheiðar Elínar Árnadóttur að setja hömlur á fólkið í landinu ... hömlur á að þau geti nýtt sínar eigin eignir til þess að vera þessi nauðsynlegi stuðpúði sem við þurfum.
Sé heimagistingin gerð löglega og eins og hún upphaflega var hugsuð (herbergjaleiga í heimahúsi, Bed & Breakfast, Zimmer frei) þá er hún einmitt þessi bráðnauðsynlegi púði til að verja efnahag Íslands fyrir öðru hruni. En nei, stóreignamenn gengu svo frá hnútunum, með ráðherra sjálfstæðisflokks í broddi fylkingar að fé skyldi færa frá hinum almenna borgara sem er að vinna fyrir sér á þennan hátt og til þeirra sem allt vilja eiga og allt vilja fá.
Þessi lög leggja þungan stein á vogarskálar næsta hruns ... vitið þið til !!!
... og þá er gott að muna hvaða flokkur og hvaða ráðherra (Ragnheiður Elín Árnadóttir) fylgdi gjörningnum í gegn um Alþingi Íslendinga.
Og þá er kominn sá tími að við Íslendingar þurfum að horfa upp á annað hrun í boði Sjálfstæðisflokks með sina "einkavinavæðingu" sem tröllríður þessu landi og þjóð út í rauðann dauðann.
Reykjavík verður full af tómum hótelum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ólafur Einarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar