Vonandi hef ég rangt fyrir mér!!!

En er ekki búið að upplýsa heimsbyggðina um að önnur, þriðja og jafnvel fjórða bylgja veirunnar muni ríða yfir okkur.

Á þessum tímapunkti lítur dæmið etv. út á þann máta að Svíar hafi farið rangt að, en væri ekki réttara að gera dæmið upp þegar öll kurl eru komin til grafar?!

Miðað við það sem sérfræðingar á öllum sviðum heilbrigðisstétta eru að segja þá er ónæmiskerfi okkar í ákveðinni "afslöppun". Geta þess er nú sljóvguð og ekki eins fær um að takast á við það sem etv. er framundan, einmitt vegna einangrunarinnar.

Mikið vona ég samt að sérfræðingarnir hafi rangt fyrir sér!

PS. 
Það er nú samt þannig að í "Spænsku veikinni" svokölluðu þá var einmitt þessi leið farin, að loka fólk inni, veiran lagðist í dvala um vorið en um haustið kom hún inn af fullum þunga og gerði slíkt strandhögg sem sagan vitnar um. 

Hefði etv. verið gott að taka mið af reynslu fyrri tíma áður en farið var í lokunaraðgerðirnar.


mbl.is 70 hefðu látist með „sænsku leiðinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Einarsson

Áhugamaður um almennt heilsufrelsi. Valfrelsið er okkar stærsta gjöf, notum það!

Höfundur

Ólafur Einarsson
Ólafur Einarsson
Áhugamaður um heilsufrelsi Íslendinga. Við eigum að hafa réttinn til að velja okkar meðferðarleið til heilbrigðis sjálf, og fá til þess fjárhagslegan stuðning þrátt fyrir að leiðin sé utan þess "hefðbundna".

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband