Hið lögbundna rán!

Það er nú svo skrítið með þessa blessuðu lífeyrissjóði að nú síðustu 20 - 30 árin hafa eignir mínar í þeim stöðugt minnkað. Nánast á hverju ári verður rýrnun í einhverjum þeirra sjóða sem standa eiga undir mínum útgjöldum og lífi eftir að vinnudegi líkur.

Í áraraðir heyrir maður af bruðlinu sem á sér stað innan sjóðanna. Svo virðist á stundum sem þeir sem þar höndla með mína og þína peninga séu í stökustu vandræðum með að eyða þeim. Fjöldi utanlandsferða, dýrir bílaleigubílar, dýr hótel, flottir veitingastaðir, dagpeningar o.f.l. o.f.l. allt á okkar kostnaði.

Hér er enn og aftur um einhverskonar forræðishyggju að ræða sem vernda á fólkið fyrir sjálfu sér.
Hvernig væri að kenna fólki sem vill á fjármálin sín og leyfa fólkinu sjálfu. Leyfa þeim sem ekki treysta sér til þess að njóta forræðiskerfis til að halda utan um sparnaðinn, en láta hina í firði.

Maður fer nefnilega betur með sína eigin peninga en peninga annarra.

Væri ekki annars frábært að geta tekið lífeyrissjóðslán hjá sjálfum sér á skikkanlegum vöxtum?

Persónulega á ég bágt með að trúa því að ég fái nokkurn tíma neitt út úr þeim sjóðum sem ég er þó búinn að leggja milljónir til s.l. áratugina.


mbl.is Vara við útgreiðslu viðbótarsparnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er alveg sammáli þér um forræðishyggjuna, finnst þetta fáránleg rök hjá þessum Arnari. Þetta eru nú ekki þeir peningar í viðbótarsparnaðnum að það bjargi mér eitthvað þegar að töku lífeyris kemur en það munar núna um hvern þúsund kallinn sem ég gæti lækkað yfirdráttinn með vegna óheyrilegra vaxta. Ég vil bara fá þessa peninga MÍNA núna og ráða hvað ég geri við þá.

Sigurveig (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Einarsson

Áhugamaður um almennt heilsufrelsi. Valfrelsið er okkar stærsta gjöf, notum það!

Höfundur

Ólafur Einarsson
Ólafur Einarsson
Áhugamaður um heilsufrelsi Íslendinga. Við eigum að hafa réttinn til að velja okkar meðferðarleið til heilbrigðis sjálf, og fá til þess fjárhagslegan stuðning þrátt fyrir að leiðin sé utan þess "hefðbundna".

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 4803

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband